Um okkur

Hljómey er óhagnaðardrifið samfélagsverkefni, unnið af fólki í Vestmannaeyjum sem langaði að búa til eitthvað fallegt fyrir bæinn sinn.

Hvað er Hljómey?

Hljómey er tónlistarhátíð þar sem heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum opna stofurnar sínar fyrir tónlistarfólki og gestum. Hverjir tónleikar standa í hálftíma. Gestir velja sína eigin leið um bæinn og framvísa armböndum, og flestir listamenn spila tvisvar yfir kvöldið, hvor í sínu húsinu.

Fyrsta Hljómey var haldin árið 2023. Síðan hefur hátíðin vaxið jafnt og þétt, og árið 2026 komu um 530 gestir. Í kringum aðalkvöldið eru líka Hljómey Xtra, sérstakur viðburður á laugardagskvöldinu ef við finnum eitthvað frábært, og svo BarnaHljómey, ókeypis skemmtun fyrir börn í samstarfi við Vestmannaeyjabæ í hádeginu á sjálfan Hljómey daginn.

Samfélagsverkefni, ekki gróðafyrirtæki

Enginn tekur hagnað út úr Hljómey. Miðasala, varningur og styrkir fara í að greiða listamönnum og kostnað við hátíðina, og það sem eftir verður fer aftur í næstu Hljómey.

Hátíðin byggir á velvild: húsráðendum sem opna heimili sín, sjálfboðaliðum, styrktaraðilum og bæjarbúum sem taka gestum fagnandi. Án þeirra væri engin Hljómey.

Rekstur

KGBS ehf. heldur utan um rekstur Hljómeyjar, svo sem miðasölu, vefverslun, samninga og bókhald. Félagið er rekið án hagnaðarsjónarmiða í þágu hátíðarinnar.

Fólkið á bak við Hljómey

  • Guðmundur Jóhann ÁrnasonSkipuleggjandi849 1826
  • Biggi NielsenSkipuleggjandi895 8994
  • Sædís SigurbjörnsdóttirSkipuleggjandi868 1024
  • Kolbrún Anna RúnarsdóttirSkipuleggjandi867 2852

Hafa samband

KGBS ehf. · kt. 630625-1300
Vestmannabraut 11, 900 Vestmannaeyjar
Netfang: hljomey@hljomey.is
Sími: 849 1826