Skilmálar miðasölu

Gildir frá 20. október 2026

Þessir skilmálar gilda um forskráningu, útdrátt og kaup á miðum á Hljómey í gegnum hljomey.is. Með því að skrá þig í útdráttinn samþykkir þú skilmálana. Um viðskiptin gilda íslensk lög.

1. Seljandi

KGBS ehf., kt. 630625-1300, Vestmannabraut 11, 900 Vestmannaeyjar. Netfang: hljomey@hljomey.is · Sími: 849 1826. Seljandi er ekki á virðisaukaskattsskrá og innheimtir ekki virðisaukaskatt.

2. Forskráning

Miðar eru seldir með forskráningu og útdrætti. Á meðan forskráning er opin getur hver einstaklingur skráð sig einu sinni og valið fjölda miða upp að því hámarki sem gefið er upp.

Sama netfang eða símanúmer er aðeins hægt að skrá einu sinni í hvern útdrátt. Hljómey áskilur sér rétt til að fella niður skráningar sem bersýnilega eru gerðar til að fara í kringum þessa reglu, t.d. margar skráningar sama aðila undir mismunandi nöfnum.

Það kostar ekkert að skrá sig og skráningin er ekki bindandi fyrr en greitt hefur verið fyrir miða.

3. Útdráttur

Þegar forskráningu lýkur raðar kerfið öllum gildum skráningum í handahófskennda röð með dulmálssterkum slembitölum. Miðum er úthlutað eftir þeirri röð þar til þeir eru uppurnir. Það skiptir engu hvenær á tímabilinu skráð var.

Gestir fyrri ára fá einn aukamiða í hattinn, þ.e. tvöfalt vægi í útdrættinum. Fyrri gestur telst sá sem keypti miða á fyrri Hljómey með sama netfangi eða símanúmeri og notað er við skráninguna. Aukamiðinn er einn, óháð því hve oft viðkomandi hefur komið.

Hljómey ráðstafar allt að 50 miðum á hverja hátíð utan útdráttar, m.a. til húsráðenda, listamanna, sjálfboðaliða og samstarfsaðila. Þeir miðar eru dregnir frá áður en dregið er og greiðast eins og aðrir miðar.

Ef þeir miðar sem eftir eru duga ekki fyrir þeim fjölda sem næsti í röðinni bað um er honum boðið það sem er laust. Hann getur greitt fyrir þá miða eða hafnað þeim, og þá fara þeir til næsta í röðinni. Hann heldur ekki sæti sínu í röðinni fyrir afganginn.

Allir sem skráðu sig fá tölvupóst með niðurstöðunni: vinningshafar með greiðsluhlekk, aðrir með upplýsingum um biðlistann.

4. Greiðsla og frestur

Vinningshafar fá persónulegan greiðsluhlekk og þurfa að greiða innan þess frests sem tilgreindur er í tölvupóstinum. Greitt er með greiðslukorti á öruggri greiðslusíðu Rapyd.

Sé ekki greitt innan frestsins fellur réttur til miðanna niður og þeir fara til næstu á biðlista, í sömu röð og dregið var.

Fram að greiðslu getur vinningshafi fækkað miðunum eða hætt við á miðasíðunni sinni. Miðar sem hann sleppir fara strax til næstu á biðlista og ekki er hægt að fjölga þeim aftur. Á meðan forskráning er opin má breyta fjöldanum að vild innan hámarksins.

Kaupin eru bindandi þegar greiðsla hefur borist. Kaupandi fær miðakóða í tölvupósti og á miðasíðunni.

5. Miðar og armbönd

Hver keyptur miði hefur sinn eigin QR-kóða sem gildir fyrir eitt armband. Kóðanum er framvísað við armbandaafhendingu á Hljómey. Kaupandi getur sent einstaka miða áfram af miðasíðunni sinni. Armbandið veitir aðgang að tónleikum hátíðarinnar meðan húsrúm leyfir í hverju húsi.

Kaupanda er heimilt að gefa miða sína öðrum, en endursala á hærra verði en greitt var er óheimil. Hljómey getur ógilt miða sem hafa verið endurseldir með hagnaði.

Hver kóði gildir aðeins einu sinni og er merktur notaður þegar armband er afhent. Afrit eða skjáskot af kóða sem þegar hefur verið notaður veitir ekki armband. Kaupandi ber ábyrgð á að halda kóðunum fyrir sig og afhenda þá aðeins þeim sem eiga að nota þá.

6. Réttur til að falla frá kaupum

Miðar á Hljómey eru kaup á tómstundaþjónustu sem veitt er á tilteknum degi. Samkvæmt l-lið 18. gr. laga nr. 16/2016 um neytendasamninga gildir 14 daga réttur til að falla frá samningi því ekki um miðakaup.

Ef kaupandi kemst ekki má hann gefa miðana öðrum (sjá að ofan), eða hafa samband á hljomey@hljomey.is. Hljómey reynir þá eftir bestu getu að koma miðunum til næstu á biðlista og endurgreiða, en er ekki skuldbundin til þess.

7. Breytingar og aflýsing

Dagskrá, listamenn og hús geta breyst. Slíkar breytingar veita ekki rétt til endurgreiðslu.

Verði hátíðinni aflýst í heild sinni fá kaupendur miðaverðið endurgreitt að fullu. Verði henni frestað gilda miðarnir á nýrri dagsetningu, en kaupandi getur óskað eftir endurgreiðslu komist hann ekki.

8. Ágreiningur og persónuupplýsingar

Komi upp ágreiningur getur kaupandi leitað til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa eða Neytendastofu. Um skilmálana gilda íslensk lög og mál skal reka fyrir Héraðsdómi Suðurlands, nema lög kveði á um annað varnarþing neytanda í hag.

Um meðferð upplýsinga sem gefnar eru upp við skráningu fer samkvæmt persónuverndarstefnu Hljómeyjar.