Föstudagur 23. apríl 2027 · kl. 11:00–12:00

BarnaHljómey

Stakkó, Vestmannaeyjum

Ókeypis tónlistarfjör fyrir börn og fjölskyldur, hluti af Barnamenningardögum Suðurlands.

Barnamenningarhátíð 2027

Vestmannaeyjabær er þátttakandi í samstarfsverkefni Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) vegna undirbúnings og framkvæmdar Barnamenningarhátíðar Suðurlands árið 2027. Markmið hátíðarinnar er að efla barnamenningu og skapa vettvang þar sem börn og ungmenni fá tækifæri til að njóta menningar, taka virkan þátt og miðla eigin sköpun.

Leikskólar, grunnskólar, tónlistarskólinn, Íþróttamiðstöðin og Safnahúsið í Vestmannaeyjum munu taka þátt í verkefninu í samstarfi við SASS og aðra samstarfsaðila. Með þátttöku sinni leggur Vestmannaeyjabær áherslu á að börn og ungmenni séu í forgrunni sem skapandi þátttakendur í menningarlífi samfélagsins.

Barnamenningardagar verða haldnir í Vestmannaeyjum dagana 21.–23. apríl og verða hluti af sameiginlegri dagskrá Barnamenningardaga Suðurlands. Þar verður boðið upp á fjölbreytta viðburði, vinnustofur, sýningar og skapandi verkefni þar sem hæfileikar, hugmyndir og sjónarhorn barna og ungmenna fá notið sín. Einnig verður BarnaHljómey hluti af dagskránni, en verkefnið hefur fest sig í sessi sem mikilvægur vettvangur fyrir tónlistarsköpun og framkomu barna og ungmenna í Vestmannaeyjum og styrkir enn frekar þátttöku þeirra í hátíðinni. Samstarfið styður jafnframt við markmið Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna um þátttöku barna í samfélagi og menningu.

Þátttaka Vestmannaeyjabæjar í verkefninu er mikilvægt framlag til öflugs menningarstarfs fyrir börn og ungmenni og styrkir jafnframt samstarf sveitarfélaga á Suðurlandi á sviði menningar og fræðslu.

BarnaHljómey 2026BarnaHljómey 2026BarnaHljómey 2026BarnaHljómey 2026BarnaHljómey 2026BarnaHljómey 2026BarnaHljómey 2026BarnaHljómey 2026BarnaHljómey 2026BarnaHljómey 2026