Algengar spurningar

Allt sem gott er að vita um Hljómey: miðana, kvöldið sjálft og ferðina til Eyja.

Hátíðin

Hvað er Hljómey?

Hljómey er tónlistarhátíð þar sem heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum opna stofurnar sínar fyrir tónlistarfólki og gestum. Hverjir tónleikar standa í hálftíma. Gestir velja sína eigin leið um bæinn og framvísa armböndum, og flestir listamenn spila tvisvar yfir kvöldið, hvor í sínu húsinu.

Hvenær er Hljómey haldin?

Hljómey er alltaf haldin daginn eftir sumardaginn fyrsta. Næsta hátíð er föstudaginn 23. apríl 2027. BarnaHljómey er í hádeginu sama dag og Hljómey Xtra á laugardagskvöldinu.

Hvernig er dagurinn?

Hátíðin er alltaf sett í Landsbankanum kl. 16:00. Tónleikarnir í húsunum hefjast kl. 19:30 og standa til miðnættis. Hátíðinni lýkur alltaf fyrir utan Brothers Brewery með samsöng og brennu.

Er aldurstakmark?

Já, aldurstakmark á Hljómey er 18 ár. BarnaHljómey er hins vegar fyrir börn og fjölskyldur og ókeypis.

Hvar fer hátíðin fram?

Í heimahúsum og fyrirtækjum í miðbæ Vestmannaeyja. Húsin eru kynnt þegar nær dregur og birtast á dagskránni og í Hljómey-appinu með heimilisfangi og korti.

Hverjir spila?

Listamennirnir eru kynntir einn í einu á vefnum, á samfélagsmiðlum og á póstlistanum. Á hverri hátíð spila um 15 listamenn í um 15 húsum. Á síðunni Listamenn sérðu alla sem hafa spilað frá upphafi.

Hvað er Hljómey Xtra?

Hljómey Xtra er sérstakur viðburður haldinn á laugardagskvöldinu á Hljómey helginni, í Alþýðuhúsinu. Hann er aðeins haldinn ef við finnum eitthvað einstakt sem Vestmannaeyjar fá sjaldan að upplifa. Við getum staðfest að Hljómey Xtra verður haldin 2027. Miðar á Xtra eru seldir sérstaklega.

Hvað er BarnaHljómey?

BarnaHljómey er ókeypis skemmtun fyrir börn og fjölskyldur í hádeginu á sjálfan Hljómey daginn, í samstarfi við Vestmannaeyjabæ og hluti af Barnamenningardögum Suðurlands.

Miðar

Hvernig fæ ég miða?

Miðar eru seldir með forskráningu og útdrætti á hljomey.is/midasala. Fyrir Hljómey 2027 opnar forskráning 5. febrúar 2027 kl. 12 og er opin í viku. Það skiptir engu hvenær á tímabilinu þú skráir þig. Þegar forskráningu lýkur er dregið af handahófi og vinningshafar fá greiðsluhlekk í tölvupósti.

Fá fyrri gestir forgang?

Gestir fyrri ára fá einn aukamiða í hattinn, þ.e. tvöfalt vægi í útdrættinum, ef þeir skrá sig með sama netfangi eða símanúmeri og þeir keyptu miða með áður.

Hversu langan tíma hef ég til að greiða?

Vinningshafar þurfa að greiða innan þess frests sem kemur fram í tölvupóstinum. Sé ekki greitt innan frestsins fara miðarnir til næstu á biðlista.

Hvernig fæ ég armbandið?

Hver miði hefur sinn eigin QR-kóða sem gildir fyrir eitt armband. Þú framvísar kóðanum við armbandaafhendingu á Hljómey, úr tölvupóstinum, Hljómey-appinu eða símaveskinu (Apple Wallet eða Google Wallet).

Má ég gefa miðann minn?

Já, þú mátt gefa miðana þína öðrum og getur sent einstaka miða áfram af miðasíðunni þinni. Endursala á hærra verði en greitt var er óheimil.

Kemst ég örugglega inn í öll húsin?

Armbandið veitir aðgang að tónleikum hátíðarinnar meðan húsrúm leyfir í hverju húsi. Þar sem flestir listamenn spila tvisvar er yfirleitt hægt að ná þeim sem maður vill sjá.

Ferðin til Eyja

Hvernig kemst ég til Vestmannaeyja?

Ferjan Herjólfur siglir á milli lands og Eyja. Ekki er flogið til Eyja á þessum árstíma, svo bókaðu ferjuna tímanlega, því margir koma til Eyja um Hljómeyjarhelgina.

Hvar get ég gist?

Á vef Visit Vestmannaeyjar er listi yfir gistingu í Eyjum. Það borgar sig að bóka snemma.

Er til app?

Já, Hljómey-appið er ókeypis. Þar sérðu listamennina, setur saman þitt eigið kvöld í Mín Hljómey, finnur húsin á kortinu og geymir miðann þinn.

Annað

Hver stendur á bak við Hljómey?

Hljómey er óhagnaðardrifið samfélagsverkefni, unnið af fólki í Vestmannaeyjum. KGBS ehf. heldur utan um reksturinn og það sem eftir verður fer aftur í næstu Hljómey.

Hvað eru tónlistarleikir Hljómeyjar?

Á leikir.hljomey.is eru ókeypis tónlistarleikir allt árið: pöbbkviss, tónlistarbingó, bingó, gítarpartý, karaoke og „Hvaða ár?“. Stóri skjárinn spilar og síminn er svarhnappurinn.

Hvernig hef ég samband?

Sendu okkur línu á hljomey@hljomey.is eða skrifaðu okkur á Facebook.

Fannstu ekki svarið? Sendu okkur línu á hljomey@hljomey.is.