Persónuverndarstefna

Gildir frá 20. október 2026

Hljómey tekur persónuvernd alvarlega og safnar eins litlu og hægt er. Hér er sagt frá því hvaða upplýsingum er safnað á hljomey.is, í Hljómey-appinu og í leikjum Hljómeyjar, í hvaða tilgangi, hve lengi þær eru geymdar og hver réttindi þín eru. Stefnan byggir á lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og almennu persónuverndarreglugerðinni (ESB) 2016/679.

1. Ábyrgðaraðili

KGBS ehf., kt. 630625-1300, Vestmannabraut 11, 900 Vestmannaeyjar, rekur Hljómey, vefinn hljomey.is, Hljómey-appið og leiki Hljómeyjar og ber ábyrgð á vinnslunni sem hér er lýst.

Fyrirspurnir um persónuvernd sendast á hljomey@hljomey.is eða í síma 849 1826.

2. Vefurinn almennt

Það þarf ekki að skrá sig eða gefa upp neinar upplýsingar til að skoða vefinn. Engar vafrakökur eru notaðar til að fylgjast með notendum eða auglýsa, og engin greiningartól eins og Google Analytics eða Facebook Pixel eru á vefnum. Til að sjá hve margir heimsækja vefinn notum við Vercel Web Analytics, sem notar engar vafrakökur og vistar ekkert í vafranum. Þar er aðeins skráð hvaða síða var skoðuð, hvaðan heimsóknin kom (t.d. Facebook eða Google), land, tegund tækis og vafra. IP-tala er ekki vistuð og gestir eru ekki raktir milli daga eða vefja. Lagagrundvöllur er lögmætir hagsmunir af því að vita hvernig vefurinn er notaður. Letur og myndir vefsins eru hýst á vefnum sjálfum, svo ekkert er sótt til Google Fonts eða annarra leturveitna.

Hýsingaraðili vefsins (Vercel) skráir tæknilegar upplýsingar sem fylgja hverri heimsókn, svo sem IP-tölu, tegund vafra og hvaða síða var sótt. Það er gert til að reka vefinn og verja hann gegn misnotkun, og upplýsingarnar eru aðeins geymdar í skamman tíma. Lagagrundvöllur er lögmætir hagsmunir af því að halda vefnum gangandi og öruggum.

3. Myndbönd frá YouTube (Google)

Myndbandið efst á forsíðunni er hýst á vefnum sjálfum, svo ekkert er sótt frá YouTube eða Google þegar forsíðan opnast.

Myndböndin á síðunni Myndir eru spiluð frá YouTube, sem Google Ireland Ltd. rekur, í „aukinni persónuvernd“ (youtube-nocookie.com). Þau hlaðast ekki fyrr en þú smellir á þau. Þá tengist vafrinn þinn netþjónum Google, sem fá IP-tölu þína og tæknilegar upplýsingar um vafrann og tækið, og YouTube getur vistað upplýsingar í vafranum til að spilarinn virki. Hljómey fær engar af þessum upplýsingum.

Google vinnur upplýsingarnar samkvæmt eigin persónuverndarstefnu (policies.google.com/privacy) og getur flutt þær til Bandaríkjanna á grundvelli rammasamnings ESB og Bandaríkjanna um persónuvernd. Ef þú vilt ekki að vafrinn tengist YouTube skaltu einfaldlega ekki smella á myndböndin.

4. Hljómey-appið

  • Engin innskráning: það þarf ekki að skrá sig eða gefa upp neinar upplýsingar til að nota appið.
  • Uppáhaldsflytjendur og áminningar eru aðeins vistaðar á símanum þínum og fara hvergi. Áminningar eru staðbundnar tilkynningar sem síminn sjálfur birtir, og appið biður um leyfi áður en þær eru virkjaðar.
  • Dagskrá og upplýsingar um hús eru sóttar úr gagnagrunni Hljómeyjar (Supabase), sem sér þá IP-tölu símans. Svari gagnagrunnurinn ekki sækir appið sömu upplýsingar úr Google Sheets, og þá fær Google IP-töluna.
  • Kortið: á iPhone eru kort frá Apple og á Android kort frá Google. Kortaveitan fær IP-tölu og upplýsingar um það svæði sem er skoðað. Appið biður ekki um staðsetningu þína og notar hana ekki.
  • Flipinn Leikir opnar leikjasíðu Hljómeyjar inni í appinu, sjá næsta kafla. Tenglar á t.d. Spotify og Facebook opnast í vafra og þá gilda skilmálar þeirra.

5. Leikir Hljómeyjar

  • Hverju er safnað: nafninu eða gælunafninu sem þú slærð inn þegar þú tekur þátt, svörum þínum og stigum, og í karaoke og gítarpartýi laginu sem þú biður um. Það þarf ekki að nota rétt nafn.
  • Tilgangur: að halda utan um leikinn og sýna stöðu og sigurvegara á skjánum.
  • Lagagrundvöllur: lögmætir hagsmunir af því að halda leikinn sem þú ákveður sjálf(ur) að taka þátt í.
  • Varðveisla: upplýsingarnar eru vistaðar í gagnagrunni Hljómeyjar (Supabase) og gömlum leikjum er eytt sjálfkrafa eftir 30 daga.

Leikjasíðan sækir letur frá Google Fonts (Google), forritasöfn frá jsDelivr og cdnjs (Cloudflare), tóndæmi frá Deezer og karaoke-myndbönd frá YouTube (Google). Þessir aðilar fá IP-tölu þína og tæknilegar upplýsingar um vafrann þegar efnið er sótt. Sá sem stjórnar leik getur auk þess tengst Spotify og MusicBrainz til að velja lög.

6. Forskráning og miðakaup

  • Hverju er safnað: nafni, netfangi, símanúmeri, fjölda miða sem beðið er um, stöðu í útdrættinum og, við kaup, greiðslu og miðakóða.
  • Tilgangur: að halda útdráttinn, tryggja að hver aðili skrái sig aðeins einu sinni, hafa samband við vinningshafa og þá sem eru á biðlista, taka við greiðslu og afhenda miða.
  • Lagagrundvöllur: ráðstafanir að beiðni þinni áður en samningur er gerður og framkvæmd samnings, og lagaskylda samkvæmt lögum um bókhald þegar greitt hefur verið.
  • Varðveisla: skráningum sem ekki leiða til kaupa er eytt sjálfkrafa sex mánuðum eftir að forskráningu lýkur. Upplýsingar um greidda miða eru geymdar í sjö ár sem bókhaldsgögn.
  • Póstlisti: þú ferð aðeins á póstlistann ef þú hakar sérstaklega við það við skráninguna.
  • Fyrri gestir: til að gefa gestum fyrri ára aukamiða í útdrættinum geymum við netföng og símanúmer kaupenda á fyrri Hljómeyjar (úr miðasölukerfi Midix), án nafna. Þau eru aðeins notuð til að bera saman við skráningar og eru ekki notuð til að senda þér póst. Lagagrundvöllur er lögmætir hagsmunir Hljómeyjar af því að umbuna tryggum gestum. Þú getur andmælt og beðið um að vera tekin(n) af listanum á hljomey@hljomey.is.

7. Póstlisti

  • Hverju er safnað: netfangi, tungumáli vefsins og hvaðan skráningin kom (t.d. forsíða), ásamt tíma skráningar.
  • Tilgangur: að senda fréttir af Hljómey, svo sem þegar listamenn eru kynntir og miðasala opnar.
  • Lagagrundvöllur: samþykki þitt, sem þú gefur með því að skrá þig.
  • Varðveisla: þar til þú afskráir þig. Það geturðu gert hvenær sem er með hlekk í póstinum eða með því að senda póst á hljomey@hljomey.is.

8. Vefverslun

  • Hverju er safnað: nafni, netfangi, símanúmeri, afhendingarmáta, heimilisfangi og afhendingarstað Póstsins ef varan er send, athugasemd ef þú skrifar hana, keyptum vörum og upphæðum, ásamt tíma pöntunar og greiðslu.
  • Tilgangur: að taka á móti og afgreiða pöntunina, senda þér staðfestingu í tölvupósti, afhenda vöruna, hafa samband vegna afhendingar, gefa út kvittun, sinna skilum, kvörtunum og endurgreiðslum og halda bókhald.
  • Lagagrundvöllur: framkvæmd samnings við þig og lagaskylda samkvæmt lögum nr. 145/1994 um bókhald.
  • Varðveisla: bókhaldsgögn, þar á meðal pantanir og kvittanir, eru geymd í sjö ár frá lokum reikningsárs eins og lög um bókhald krefjast, og síðan eytt.
  • Kortaupplýsingar: greitt er á greiðslusíðu Rapyd. Hljómey sér aldrei og geymir aldrei kortanúmer.

9. Geymsla í vafranum þínum

Karfan í vefversluninni er geymd í vafranum þínum (localStorage) svo hún hverfi ekki milli síðna. Hún er aldrei send til okkar fyrr en þú gengur frá pöntun og þú getur eytt henni með því að tæma körfuna eða hreinsa vafragögn. Stjórnendur Hljómeyjar sem skrá sig inn í stjórnborðið fá innskráningarlykil í vafrann. Þetta er nauðsynlegt til að vefurinn virki og krefst ekki samþykkis.

10. Hverjir fá upplýsingarnar

Upplýsingarnar eru aldrei seldar eða notaðar í auglýsingaskyni. Aðeins þeir sem sjá um Hljómey hafa aðgang að þeim, og eftirtaldir vinnsluaðilar vinna þær fyrir okkar hönd:

  • Supabase: gagnagrunnur fyrir póstlista og pantanir, hýstur á Írlandi (innan EES). Þegar þú skráir þig á póstlistann eða pantar tengist vafrinn þinn Supabase beint og Supabase sér þá IP-tölu þína. Sumar myndir á vefnum eru líka sóttar þaðan.
  • Vercel: hýsing vefsins og talning heimsókna (Web Analytics). Vercel er bandarískt fyrirtæki og flutningur upplýsinga fer fram á grundvelli rammasamnings ESB og Bandaríkjanna um persónuvernd (EU–US Data Privacy Framework) og staðlaðra samningsskilmála.
  • Rapyd: greiðsluþjónusta sem tekur við greiðslum og vinnur kortaupplýsingar.
  • ImprovMX: áframsendir tölvupóst sem sendur er á netföng @hljomey.is, t.d. svör við fréttabréfum og staðfestingum, í pósthólf Hljómeyjar. ImprovMX fær því efni þeirra pósta og vinnur það samkvæmt eigin persónuverndarstefnu.
  • Resend: sendir staðfestingarpósta vegna pantana og fréttabréf til áskrifenda. Resend fær netfang þitt og, við pöntun, nafn og upplýsingar um pöntunina. Resend er bandarískt fyrirtæki og flutningur fer fram á grundvelli staðlaðra samningsskilmála ESB.
  • Pósturinn (Íslandspóstur ohf.): fær nafn, heimilisfang, netfang, símanúmer og þyngd pakkans þegar vara er send, til að geta afhent hana og látið vita af henni. Póstnúmer og þyngd körfu eru send Póstinum á greiðslusíðunni til að sækja sendingarverð.
  • Google: fær IP-tölu og tæknilegar upplýsingar þegar myndband spilast frá YouTube, þegar appið sækir dagskrá úr Google Sheets, þegar kort birtist á Android og þegar leikjasíðan sækir letur. Google er sjálfstæður ábyrgðaraðili að þeirri vinnslu.
  • Apple: kort í appinu á iPhone.
  • Deezer, jsDelivr og Cloudflare (cdnjs): efni sem leikjasíðan sækir, sjá kaflann um leikina.

Engir aðrir þriðju aðilar fá upplýsingar frá vefnum, appinu eða leikjunum. Þetta var kannað með því að skrá allar tengingar sem vefurinn myndar í vafra og fara yfir kóða appsins og leikjanna.

11. Tenglar á aðra vefi

Á vefnum eru tenglar á Spotify (tónlist listamanna), leikjasíðu Hljómeyjar og fleiri vefi. Ekkert er sent til þeirra fyrr en þú smellir á tengilinn, og eftir það gilda skilmálar og persónuverndarstefna þess vefs.

12. Réttindi þín

Þú átt rétt á að fá að vita hvaða upplýsingar við geymum um þig og fá afrit af þeim, að fá rangar upplýsingar leiðréttar, að fá upplýsingum eytt þegar ekki er lengur þörf á þeim, að andmæla vinnslu eða fá hana takmarkaða, að fá upplýsingarnar afhentar á tölvutæku formi og að afturkalla samþykki hvenær sem er.

Sendu beiðni á hljomey@hljomey.is. Við svörum innan mánaðar. Athugaðu að bókhaldsgögnum má ekki eyða fyrr en lögbundinn varðveislutími er liðinn.

Ef þú telur að ekki sé farið rétt með upplýsingar um þig geturðu kvartað til Persónuverndar (personuvernd.is).

13. Öryggi

Öll samskipti við vefinn eru dulkóðuð (HTTPS). Aðgangur að pöntunum og póstlista er bundinn við innskráða stjórnendur, og kaupandi getur aðeins séð sína eigin kvittun með leynilegum hlekk sem hann fær við kaupin.

14. Breytingar

Stefnan getur breyst, t.d. ef ný þjónusta bætist við. Nýjasta útgáfan er alltaf hér á vefnum og dagsetningin efst segir hvenær henni var síðast breytt.